himnasending.blogspot.com
Hversdagssögur úr Rimunum: Fyrsti skóladagurinn
http://himnasending.blogspot.com/2011/08/fyrsti-skoladagurinn.html
Þá er stórum áfanga náð í lífi Ísaks-og foreldranna. Fyrsti skóladagurinn á enda! Ég ákvað þá bara að fara í göngutúr og sótti hann svo hálftíma seinna alsælan. Á morgun ætlar hann sko að fara ALEINN í Tígrisbæ-mjög spenntur. Það er því þungu fargi af okkur foreldrunum létt svona eftir fyrsta daginn. Vonandi eignast hann svo bara fljótt vini. Það verða örugglega viðbrigði að vera foreldri grunnskólabarns. Spennandi tímar framundan en mjög gott að eiga einn ennþá í leikskóla ;-). Ójá man þessa tilfinningu!
himnasending.blogspot.com
Hversdagssögur úr Rimunum: febrúar 2011
http://himnasending.blogspot.com/2011_02_01_archive.html
Allur líkaminn titraði og hann var ískaldur. Litla skinnið mitt, hann var svoooo hræddur! Sem betur fer jafnaði hann sig þegar lækkað var í mesta hávaðanum og myndin byrjaði. Jökull veltist um af hlátri við hliðina á honum. Alveg ótrúlegur óþarfi þessi hávaði í bíó! Mér finnst oft að þetta sé allt of hátt stillt, hvað þá viðkvæm barnaeyru. En Ísak er óvenju viðkvæmur og maður verður kannski bara að muna eftir eyrnatöppum fyrir hann eins og á Gamlárs og Menningarnótt. Mánudagur, febrúar 28, 2011. Ég held ...
maggiragg.blogspot.com
Pabbi Ísaks og Jakobs: JÓNSKVÖLD í Iðnó
http://maggiragg.blogspot.com/2008/11/jnskvld-in.html
Pabbi Ísaks og Jakobs. Föstudagur, nóvember 14, 2008. Þriðjudaginn 18. nóvember 2008 kl. 20.00. Til heiðurs Jóni Ásgeirssyni, áttræðum! Ótrúlegt en satt; flutt verða sjö lög eftir hann sem aldrei hafa heyrst opinberlega og að auki nokkur af hans ógleymanlegu lögum og útsetningum. Einnig gefst tónleikagestum færi á að taka undir í frábærum keðjusöngvum hans. Á efnisskrá eru útsetningar og kórlög eftir Jón Ásgeirsson,. Ma verða frumflutt 3 lög hans við ljóð Vilborgar Dagbjartsdóttur.
himnasending.blogspot.com
Hversdagssögur úr Rimunum: Tveggja ára
http://himnasending.blogspot.com/2011/04/tveggja-ara.html
Elskulegi Jakob okkar er orðinn 2 ára! Ótrúlegt, ég veit, maður segir þetta á hverju afmæli barna sinna en það er alltaf jafn ótrúlegt. Þessi litli maður er náttúrulega bara draumabarn. Fullkominn eins og við fengum staðfest í foreldraviðtalinu í leikskólanum í dag. En það varð kaka og Jakob borðaði pastasallat og fetaost (uppáhaldið) og tróð sig út af vínberjum. Þriðjudagur, apríl 05, 2011. Til hamingju með elskulegan Jakob þinn. Knúsaðu hann og kysstu frá okkur mæðgum. Knús, Sóldís Lilja og Hugborg.
himnasending.blogspot.com
Hversdagssögur úr Rimunum: Júní
http://himnasending.blogspot.com/2011/06/juni.html
Margt hefur á daga okkar drifið síðan síðast-enda langt um liðið. Sumt breytist þó lítið eins og að Nemó er enn í uppáhaldi og meðan ég skrifa þetta erum við Jakob að horfa á Nemó í örugglega 100.sinnSjáum til, hvað hefur nú gerst síðan í mars? Úff hvað mér fannst það erfið tilhugsun lengi vel en nú held ég að ég sé að mestu búin að jafna mig. samt finnst mér þetta ótrúlegt. Litla barnið! Oh hann er svo sæt! Sunnudagur, júní 26, 2011. Þvílíkur dýrðarpistill um undradrengi. Amma mont í Vesturbænum.
maggiragg.blogspot.com
Pabbi Ísaks og Jakobs: Aðrir tónleikar vetrarins
http://maggiragg.blogspot.com/2008/10/arir-tnleikar-vetrarins.html
Pabbi Ísaks og Jakobs. Laugardagur, október 18, 2008. Klezmertónleikarnir með Fílharmóníunni og Gröndal systkinunum ásamt hljómsveit gengu alveg stórkostlega vel. Það var rosa góð stemning og nánast full kirkja í bæði skiptin. Ég man varla eftir öðrum eins viðbrögðum eins og á miðvikudaginn. Hlómeyki verður með mjög flotta tónleika næstkomandi laugardag kl. 12 í Hásölum í Hafnarfirði, þ.e. salurinn á milli Hafnarfjarðarkirkju og Tónlistarskólans. Við ætlum að frumflytja fjögur verk. 18 október, 2008 19:50.
maggiragg.blogspot.com
Pabbi Ísaks og Jakobs: ágúst 2008
http://maggiragg.blogspot.com/2008_08_01_archive.html
Pabbi Ísaks og Jakobs. Föstudagur, ágúst 29, 2008. Það sem þessi blessaði köttur lætur bjóða sér! Miðvikudagur, ágúst 20, 2008. Það koma ennþá gullkorn frá þeim tveggja ára. Í morgun var hann að tala um Súpermann af einhverjum ástæðum og ég spurði hvað hann gerði. Ísak svaraði: "Býr til súpu! Föstudagur, ágúst 01, 2008. Við erum nýkomin úr vikudvöl frá Köben. Það var alveg æðislegt! Gerast áskrifandi að: Færslur (Atom). Skoða allan prófílinn minn. Sætasta mamma í heimi. Torfi frændi (ekki minn þó).
maggiragg.blogspot.com
Pabbi Ísaks og Jakobs: Það sem þessi blessaði köttur lætur bjóða sér!
http://maggiragg.blogspot.com/2008/08/sem-essi-blessai-kttur-ltur-bja-sr.html
Pabbi Ísaks og Jakobs. Föstudagur, ágúst 29, 2008. Það sem þessi blessaði köttur lætur bjóða sér! Gerast áskrifandi að: Birta ummæli (Atom). Skoða allan prófílinn minn. Sætasta mamma í heimi. Torfi frændi (ekki minn þó). Sigrún forforforveri minn í starfi. Hallveig (al. Vælan). Bjarney Ingibjörg (al. Syngibjörg). HlínsíFínsí. Bryndís frænka (ekki mín heldur). Guðrún Lára í Uppsölum. Það sem þessi blessaði köttur lætur bjóða sér! Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn plummar sig vel. Ha.
maggiragg.blogspot.com
Pabbi Ísaks og Jakobs
http://maggiragg.blogspot.com/2008/09/g-er-binn-hlusta-tplega-hundra-manns.html
Pabbi Ísaks og Jakobs. Miðvikudagur, september 03, 2008. Fyrsta æfing var í kvöld og hljómurinn var mjög góður. Nú verður hamrað á góðum mætingum og kórmeðlimum gert grein fyrir því að ef þeir standa sig ekki þá er af nógu góðu fólki til að taka inn i kórinn. Glæsilegt:O) gangi ykkur vel með verkefni vetrarins. 07 september, 2008 20:46. Gerast áskrifandi að: Birta ummæli (Atom). Skoða allan prófílinn minn. Sætasta mamma í heimi. Torfi frændi (ekki minn þó). Sigrún forforforveri minn í starfi.
maggiragg.blogspot.com
Pabbi Ísaks og Jakobs: september 2008
http://maggiragg.blogspot.com/2008_09_01_archive.html
Pabbi Ísaks og Jakobs. Þriðjudagur, september 16, 2008. Ég er búinn að taka til eftir Kára. Tók ekki nema eitt ár. Ohhhh hvað ég sé eftir að hafa ekki tekið mynd af skrifstofunni eins og hún var. Laugardagur, september 13, 2008. 197 dagar í áætlaðan komudag Krulla. Fimmtudagur, september 04, 2008. Enn ein sagan af Ísak. Ísak: Ég fékk tvo límmiða í gær. Það er bara nokkuð gott. Ég: Viltu pissa í klósettið núna og fá fleiri límmiða? Ísak: Nei, nei. Þetta er orðið gott! Miðvikudagur, september 03, 2008.